Yfirlit yfir
Brunnhóll - Gistihús bænda
Heimilisfang:Brunnhóli .
Staður:781 Höfn í Hornafirði
Sími:478 1029
Netfang:brunnholl@brunnholl.is
Heimasíða:www.brunnholl.isOpnunartími:Opið frá 1. apríl – 31. október
Afgreiðsla opin frá 7.30 – 23.00
LÝSING
Verið hjartanlega velkomin að Brunnhóli
•Björt og rúmgóð herbergi í hótelgæðum, nær öll með sérbaði
•Reyklaust gistiheimili
•Morgunverðar- og kvöldverðarhlaðborð
•Jöklaís, heimalagaður ís - beint frá býli
•Bjartar og rúmgóðar setustofur
•Skjólgóð útisvæði með bekkjum og borðum
•Eldhús til afnota fyrir gesti
•Fjölskylduherbergi
•Hefðbundinn búskapur á staðnum
•Frábært útsýni til jökla
•Merktar gönguleiðir í nágrenninu
•Greiðfær vegur að jökli og niður í fjöru
•Þjóðlegt handverk
•Þráðlaus internetaðgangur
•Drykkir, frímerki og fl. til sölu í afgreiðslu
•Kirkjustaður
•Við þjóðveg 1, 30 km vestan Hafnar
Heimild: www.brunnholl.is
Frá Access Iceland:
Úttekt er gerð 18. maí 2012 og þá eru framkvæmdir við frágang bílastæða og aðkomu á næsta leyti.
Almennt er aðgengi gott innandyra en aðkoman er erfið fyrir hjólastólanotendur og þá sem eiga erfitt með gang.
Herbergi 113 og 6 önnur sambærileg eru vel aðgengileg fyrir fatlað fólk þó ekki séu öllum kröfum um hjólastólaaðgengi náð. Engir þröskuldar eru í herberginu og sturtusvæðið er án sturtubotns og því vel nothæft sem athafnarými og það eru rennihurðir á baðherbergjunum sem auðveldar alla umgengni um rýmin. Læsingar á baðherbergjunum og herbergjunum eru erfiðar fyrir þá sem eru máttlitlir í fingrum og/eða höndum. Engar armstoðir eru við salernin.
Herbergi 106 er mjög rúmgott og hentar vel þeim sem þurfa mikið rými. Tvö 90 cm rúm eru í herberginu sem hægt er að færa saman sé þess óskað. Athafnarými við hlið rúmsins er um 160 x 350 cm.
Herbergi 105 - 107 og 109 eru ekki með nægt rými fyrir hjólastólanotendur en þó aðgengileg mörgum þar sem engin teppi eru á gólfum. Baðherbergi er mjög lítið en haganlega innréttuð og sturtan er án sturtubotns. Umferðarbreidd inn í herbergið er 77 cm en 71 cm inn á baðherbergið.