Heydalur - Ferðaþjónusta - móttaka
Heydalur er kjarri vaxinn dalur sem gengur inn úr Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi. Hann er í 130 km. fjarlægð frá Ísafirði, 110 km. fjarlægð frá Hólmavík og 190 km. frá Búðardal. Komdu til okkar í Heydal og slappaðu af í sveitinni, njóttu ljúffengra máltíða og góðrar gistingar. Í boði er einnig fjölbreytt afþreying svo engum ætti að leiðast. Heydalur er sannkallaður ævintýradalur. Í Heydal og nágrenni eru heitar laugar, pottar og sundlaug. Það er náttúrulaug á Galtarhrygg .Sagt er að Guðmundur góði hafi vígt hana. Sögusagnir herma að fólk með ýmsa krankleika hafi talið laugarbað í Galtarhryggslaug veita sér bót meina. Tvívegis hefur verið borað eftir heitu vatni með góðum árangri í Heydal. Fjárhúsi var breytt í gróðurhús með suðrænum gróðri og þar er sundlaug og heitur pottur. Utan dyra eru þrír pottar með nýstárlegu sniði "Onsen" pottar unnir úr fjörugrjóti og skeljasandi. (innisundlaugin og "Onsen" pottarnir eru stutt frá herbergi 9) Áfram er unnið að þróun þessa einstaka baðsvæðis í samvinnu við Vatnavini. Í Hörgshlíð er stór manngerður pottur við sjóinn. Yfir vetrartímann bjóðum við upp á ferðir á snjósleðum ,gönguskíðaleiðir og dorgveiði ( háð veðri ) Friðsæld og kyrrð langt frá allri umferð, mikill gróður hrífandi náttúra ,fjöll, fjörður, fjara og dalur.









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96