Reykjavík _ Árbæjarsafn_ÍR húsið_Landakot_1.hæð
Landakot Þetta hús var byggt sem kaþólsk kirkja árið 1897. Auk þess að vera stærsta timburkirkja á landinu frá þessum tíma var hún fyrsta kaþólska kirkjan sem reist var á Íslandi eftir siðaskiptin, árið 1550. Árið 1929, þegar núverandi Landakotskirkja var tekin í notkun, var gamla kirkjan gefin Íþróttafélagi Reykjavíkur. Síðan hefur húsið verið vettvangur samkomu- og íþróttastarfsemi fyrir fjölda Reykvíkinga. Húsið var flutt á Árbæjarsafn árið 2005. Á sýningunni Í húsi Krists og kappleikja er gerð grein fyrir hinum tveimur ólíku köflum í sögu hússins. Fyrstu 30 árin var það kaþólskt guðshús en árið 1929 þegar reist hafði verið ný kirkja var ákveðið að Íþróttafélag Reykjavíkur fengi húsið að gjöf og starfaði það þar næstu 70 árin. Á sýningunni má annars vegar sjá meðal annars steindan glugga frá árinu 1896 sem var einskonar altarismynd kirkjunnar og sýnir Jesú Krist og hið heilaga hjarta og hins vegar ýmsa gripi sem tengjast frjálsíþróttaiðkun ÍR-inga í húsinu.
Oversigt over Reykjavík _ Árbæjarsafn_ÍR húsið_Landakot_1.hæð









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96