Skriðuklaustur - Gallerí
Á Skriðuklaustri er áhugavert safn, gallerí og kaffihús. Aðgengi að aðalinngangi og þar með Gunnarsstofnun er ágætt en ekki er hægt að komast inn hjálparlaust ef gestkomandi notar hjólastól. Hægt er að setja upp stórar stálbrautir sem til eru á staðnum til að komast inn um aðalinngang safnsins. Í útidyrahurðinni er um 10 cm þröskuldur og innandyra eru víða þröskuldar. Engin lyfta er milli hæða og engin snyrting sem uppfyllir lágmarkskröfur aðgengismerkjakerfisins fyrir hjólastólanotendur. Þó ættu margir að geta nýtt sér snyrtiaðstöðuna við Klausturkaffi. Benda skal á að umferðamál inn á snyrtinguna er einungis 70 cm. Galleríið og ein af snyrtingum hússins er staðsett á palli, frá neðri hæð hússins, en þangað eru 2 þrep og engin lyfta. Hægt er að aka bíl niðurfyrir húsið og leggja nálægt innganginum inn í Klausturkaffi. Inngangur inn í Klausturkaffi er án hæðarmunar.









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96