Skriðuklaustur - Gunnarsstofnun
Á Skriðuklaustri er áhugavert safn, gallerí og kaffihús. Aðgengi að aðalinngangi (að ofanverðu) og þar með Gunnarsstofu er ágætt en ekki er hægt að komast inn hjálparlaust ef gestkomandi notar hjólastól. Hægt er að setja upp stórar stálbrautir sem til eru á staðnum til að komast inn um aðalinngang safnsins. Í útidyrahurðinni er um 10 cm þröskuldur og innandyra eru víða þröskuldar. Engin lyfta er milli hæða og engin snyrting sem uppfyllir lágmarkskröfur aðgengismerkjakerfisins fyrir hjólastólanotendur. Þó ættu margir að geta nýtt sér snyrtiaðstöðuna á neðri hæðinni við Klausturkaffi. Benda skal á að umferðamál inn á snyrtinguna er einungis 70 cm. Ágætt bílastæði er fyrir framan inngang inn í Klausturkaffi en þó er ekkert sérmerkt stæði fyrir hreyfihamlaða. Inngangur inn í Klausturkaffi er án hæðarmunar.









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96