Skriðuklaustur - Klausturkaffi
Á Skriðuklaustri er áhugavert safn, gallerí og kaffihús. Ágætt bílastæði er fyrir framan inngang inn í Klausturkaffi en þó er ekkert sérmerkt stæði fyrir hreyfihamlaða. Inngangur inn í Klausturkaffi er án hæðarmunar. Aðgengi að aðalinngangi (að ofanverðu) og þar með Gunnarsstofu er ágætt en ekki er hægt að komast inn hjálparlaust ef gestkomandi notar hjólastól. Hægt er að setja upp stórar stálbrautir sem til eru á staðnum til að komast inn um aðalinngang safnsins. Í útidyrahurðinni er um 10 cm þröskuldur og innandyra eru víða þröskuldar. Engin lyfta er milli hæða og engin snyrting sem uppfyllir lágmarkskröfur aðgengismerkjakerfisins fyrir hjólastólanotendur. Þó ættu margir að geta nýtt sér snyrtiaðstöðuna á neðri hæðinni við Klausturkaffi. Benda skal á að umferðamál inn á snyrtinguna er einungis 70 cm. Af heimasíðu skriðuklausturs: heitir veitingastaður á neðri hæð Gunnarshúss á Skriðuklaustri. Þar er íslensk matargerð í hávegum höfð og lögð áhersla á að nota hráefni af svæðisins, s.s. lambakjöt, hreindýrakjöt, hrútaber og lerkisveppi. Allar kökur og allt brauð er heimabakað. Á sumrin er boðið upp á hádegis- og kaffihlaðborð alla daga. Opið er á sama tíma og Gunnarshús er opið en utan opnunartíma árið um kring geta hópar pantað fjölbreyttar veitingar, t.d. hádegisverði, kaffiveitingar, smárétti og kvöldverði. Skoðið matseðlana okkar hér til hliðar. Klausturkaffi framleiðir og selur matarminjagripi eins og Klausturfíflahunang, hvannarsultu, hrútaberjahlaup og hundasúrupestó. Sjá nánar um það undir vörur. Gamla borðstofan í Gunnarshúsi og sólstofan undir svölunum tak um 50 manns í sæti en á góðviðrisdögum er hægt að setjast út á suðurstétt og sleikja sólskinið með heimagerðum ís.









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96