Godadgang Logo

Upplýsingamiðstöð ferðamanna Reykjavík

Upplýsingamiðstöð ferðamanna Reykjavík

Höfuðborgarstofa tók til starfa í ársbyrjun 2003 og sinnir hún þríþættum verkefnum fyrir hönd Reykjavíkurborgar; rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna í Reykjavík (UMFR), almennum ferða- og kynningarmálum Reykjavíkur auk þess að bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd ýmissa lykilviðburða á vegum borgarinnar, s.s. Vetrarhátíðar, Menningarnætur, Aðventuhátíðar ofl. og vera ráðgefandi fyrir skipuleggjendur stórra viðburða í borginni. Með stofnuninni undirstrikar Reykjavíkurborg aukna áherslu á mikilvægi ferða- og markaðsmála fyrir borgina í heild. Hjá miðstöðinni hefur orðið til nýr vettvangur fyrir samstarf á vettvangi ferðaþjónustu. Skýr farvegur fyrir ferða- og kynningarmál í tengslum við viðburðaskrifstofu skapar jafnframt nýja möguleika í vöruþróun t.d. á sviði menningar- og heilsutengdrar ferðaþjónustu og er því mjög þýðingarmikið framlag til að styrkja stöðu Reykjavíkur sem höfuðborgar Íslands í samkeppni á alþjóðavettvangi. Frá 1. september 2006 hefur Höfuðborgarstofa haft umsjón með þekkingarheimsóknum til borgarinnar. Þekkingarheimsóknir eru skipulagðar heimsóknir þar sem tekið er á móti erlendum aðilum sem vilja kynna sér starfsemi og sérstöðu borgarinnar. Tilgangur þekkingarheimsókna er að gefa öðrum tækifæri á að kynnast og nýta reynslu Reykjavíkurborgar á hinum ýmsu sviðum til að ná betri árangri og/eða að kynna sér innleiðingu nýrra aðferða í rekstri.

Oversigt over Upplýsingamiðstöð ferðamanna Reykjavík

Klik på "alle" eller en gruppe for flere detaljer
Information ALLE
Flueben Kørestolsbrugere
Flueben Gang-, arm- og håndhandicappede
Flueben Synshandicappede
Flueben Hørehandicappede
Flueben Personer med astma og allergi
Flueben Udviklingshandicappede
Flueben Personer med læsevanskeligheder
Kontaktinformationer
AdresseAðalstræti 2, 101 Reykjavík

Emailinfo@visitreykjavik.is.

Hjemmesidewww.visitreykjavik.is.

Ulla Kramer

Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.

info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96