Akureyrarbær - Boginn
Íþróttamannvirkið Borgin er staðsett við Skarðshlíð á Akureyri. Notkun hússins er nátengd íþróttahúsi Íþróttafélagsins Þórs en Boginn nýtir búningsaðstöðu Þórs þegar á þarf að halda. Aðgengisupplýsingar: Aðgengi fyrir hjólastólanotendur er frá bakhlið byggingarinnar, eða austanmegin, frá Hjarðarholti. Þar eru 3 sérmerkt bílastæði fyrir fólk með hreyfihömlun. Húsið er frekar einfalt og auðvelt að komast um það. Búningsklefar Bogans eru staðsettir í húsi Íþróttafélagsins Þórs, og þarf að fara um langan og brattan gang að klefunum auk þess að það er töluverður hæðarmunur í inngönguhurð frá Boganum. Búningsklefarnir eru ekki aðgengilegir fólki með fötlun og er ein af ástæðunum sú að það er engin snyrting aðgengileg fötluðu fólki inni í búningsklefunum. Ein stök snyrting sem er rúmbetri en aðrar, er staðsett á ganginum fyrir framan búningsherbergin. Hún er ágætlega rúmgóð og bæði rými og armstoðir beggja vegna við salernið, en snyrtingin uppfyllir þó ekki allar stærða- og eða rýmiskröfur gildandi byggingarreglugerðar.
ALLE
Kørestolsbrugere
Gang-, arm- og håndhandicappede
Synshandicappede
Hørehandicappede
Personer med astma og allergi
Udviklingshandicappede
Personer med læsevanskeligheder
Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96


