Godadgang Logo

Brunnhóll - Aðalskráning - Móttaka og snyrting

Á Brunnhóli er tekið vel á móti öllum. Herbergin eru rúmgóð og þægileg. Í nýja veitingasalnum er hægt að gæða sér á heimagerðum ís og öðrum veitingum og njóta stórkostlegs útsýnis yfir fjöll og jökla. Stór verönd er útfrá borðsalnum. Aths. frá Gott aðgengi: Valin staðsetning fyrir bílastæði ætlað hreyfihömluðu fólki er góð en var enn ómerkt þegar úttekt fór fram. Aðgengi að inngangi er almennt gott, en dálítið brött skábraut upp að innganginum. Inngönguhurðir eru annarsvegar hefðbundin útopnandi ytri hurð og hinsvegar rennihurð með hreyfiskynjara í innri hurð. Afgreiðsluborð er bæði í hæð fyrir þá sem sitja og þá sem vilja standa. Snyrting við móttöku og veitingastað er með aðgengi frá vinstri hlið en einungis er armstoð vinstra megin við salernið. Herbergi 106 er mjög rúmgott og hentar vel þeim sem þurfa mikið rými. Tvö 90 cm rúm eru í herberginu sem hægt er að færa saman sé þess óskað. Athafnarými við hlið rúmsins er um 160 x 350 cm. Baðherbergið er mjög rúmgott með rennihurð og það eru armstoðir beggja vegna við salernið. Sturtan er án hæðarmunar og hægt er að fá sturtustól (koll) sé þess óskað. Herbergi 113 og 6 önnur sambærileg eru vel aðgengileg fyrir fatlað fólk þó ekki séu öllum kröfum um hjólastólaaðgengi náð. Engir þröskuldar eru í herberginu og sturtusvæðið er án hæðarmunar og því vel nothæft sem athafnarými og það eru rennihurðir á baðherbergjunum sem auðveldar alla umgengni um rýmin. Læsingar á baðherbergjunum geta verið erfiðar fyrir þá sem eru máttlitlir í fingrum og/eða höndum. Engar armstoðir eru við salernin. Herbergi 105 - 107 og 109 eru ekki með nægt rými fyrir hjólastólanotendur en þó aðgengileg mörgum þar sem engin teppi eru á gólfum. Baðherbergi er mjög lítið en haganlega innréttuð og sturtan er án sturtubotns. Umferðarbreidd inn í herbergið er 77 cm en 71 cm inn á baðherbergið. Herbergin á neðri hæðinni eru ekki aðgengileg nema viðkomandi getið gengið niður og upp tröppur.

Oversigt over Brunnhóll

Klik på "alle" eller en gruppe for flere detaljer
Information ALLE
Udråbstegn Kørestolsbrugere
Udråbstegn Gang-, arm- og håndhandicappede
Flueben Synshandicappede
Flueben Hørehandicappede
Flueben Personer med astma og allergi
Flueben Udviklingshandicappede
Flueben Personer med læsevanskeligheder
Kontaktinformationer
AdresseBrunnhóli, 781 Höfn í Hornafirði

Telefon478 1029

Emailbrunnholl@brunnholl.is

Hjemmesidewww.brunnholl.is

Ulla Kramer

Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.

info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96