Hraunfossar - brú yfir Hvítá
Eitt bílastæði er með P-skilti en ekki afmarkað á yfirborði. Öll bílastæðn eru ómalbikuð. Afmörkun á bílastæðum og göngusvæði er gert úr timburbitum 15 - 20 cm á hæð og 20 cm breiðum. Bílastæðin eru um 15 cm lægri en stígasvæðið. Engin hæðarjöfnun, fyrir utanað búið er að fleyga úr timbrinu á einumstað en það er ekki nægjanlegtsem úrtak. Göngustígar eru nokkuð þéttir en efsta lagið er fín möl sem gæti gert yfirferð hjálpartækja erfiða. Víða eu leiðarlínur úr reypum festum á staura. Þær eru ekki samfelldar og oft eru þær staðsettar aðeinsfyrir utan stíg þannig að blindir og sjónskertir geta ekki fylgt þeim án þess að rekast á grasbörð eða stíga upp á gróðurbelti. Stígur niður að brúnni er með halla 1:3 eða 33%. Brúin er úr timbri, um 150 cm breið og með handriðum beggja vegna. Handlistar á brúnni eru í 60 og 100 cm hæð. Ágætur útsýnispallur er norðan megin við brúna en enginafgerandi handrið meðfram klettabrúnunum. Göngustígur upp á klappirnar norðan við brúna er með tröppum.









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96