Hraunfossar - Útsýnispallur
Eitt bílastæði er með P-skilti en ekki afmarkað á yfirborði. Öll bílastæðn eru ómalbikuð. Afmörkun á bílastæðum og göngusvæði er gert úr timburbitum 15 - 20 cm á hæð og 20 cm breiðum. Bílastæðin eru um 15 cm lægri en stígasvæðið. Engin hæðarjöfnun, fyrir utanað búið er að fleyga úr timbrinu á einumstað en það er ekki nægjanlegtsem úrtak. Göngustígar eru nokkuð þéttir en efsta lagið er fín möl sem gæti gert yfirferð hjálpartækja erfiða. Víða eu leiðarlínur úr reypum festum á staura. Þær eru ekki samfelldar og oft eru þær staðsettar aðeinsfyrir utan stíg þannig að blindir og sjónskertir geta ekki fylgt þeim án þess að rekast á grasbörð eða stíga upp á gróðurbelti. Útsýnispallurinn er 450 x 2000 cm og með handriði allan hringinn. Handlistar eru í 50 cm og 100 cm hæð.









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96