Keflavíkurflugvöllur - Brottför/Departure
Keflavíkurflugvöllur er millilandaflugvöllur Íslands og tengir hann Ísland við umheiminn í allar áttir. Aðgengi fyrir fólk með hreyfihömlun að flugvellinum og í flugstöðinni er almennt gott og geta flugfarþegar sótt um aðstoð ef þörf er á. Þó eru margvísleg atriði sem koma í veg fyrir úthlutun merkja að svo stöddu. Þá skal bent á að ekki eru leiðarlínur fyrir blint fólk í flugstöðinni. Tilkynna þarf, við kaup á flugfargjöldum, ef um hjólastólanotendur er að ræða, það sama gildir um aðra sem þurfa aðstoð við að komast til og frá borði flugvélarinnar. Þegar komið er að flugstöðinni er hægt að kalla eftir aðstoð út að bíl, en það er hnappur á staur við sérmerkt bílastæði fyrir fólk með hreyfihömlun. Stæðið er staðsett við brottfararsvæði, þar sem rúturnar stoppa og stæðið er heilmálað í bláum lit. Þegar inn er komið er sérstakt svæði þar sem bekkir eru merktir með PRM en þar er mætingarstaður fyrir þá sem þurfa aðstoð frá starfsfólki flugvallarins. Út við glugga í aðalsal Icelandair "Check-in"er standur með kalltæki fyrir fólk með fötlun, sem kallar upp aðstoð stafsfólks ef á þarf að halda. Snyrting við „Meeting Point“ er ekki aðgengileg fólki með fötlun. Snyrting fyrir hjólastólanotendur er í kjallaranum og er farið niður á milli komusalar og brottfararsalar.
Oversigt over Keflavíkurflugvöllur









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96