Lystigarðurinn á Akureyri - Suðurhlið
Garðurinn er einn af fegurstu perlum Akureyrarbæjar. Stofnað var til hans fyrir forgöngu kvenna árið 1910 og stóð frú Anna Schiöth þar í fararbroddi. Í garðinum er að finna brjóstmynd af frú Margarethe Schiöth, tengdadóttur Önnu sem hélt starfinu áfram, og á stöpul hennar er letrað "Hún gerði garðinn frægan". Lystigarðurinn er nú í eigu Akureyrarbæjar en hann var opnaður almenningi árið 1912. Í honum má finna nánast allar þær plötur er finnast á Íslandi eða um 450 tegundir og rúmlega 6.000 erlendar tegundir. Starfsmenn Lystigarðsins halda úti fróðlegri heimasíðunni http://www.lystigardur.akureyri.is/ þar sem er að finna hafsjó upplýsinga um plöntur og fleira
Oversigt over Lystigarðurinn á Akureyri
Kørestolsbrugere
Gang-, arm- og håndhandicappede
Synshandicappede
Hørehandicappede
Personer med astma og allergi
Udviklingshandicappede
Personer med læsevanskeligheder
Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96