Godadgang Logo

Reykjanesbær - Holtaskóli

Reykjanesbær - Holtaskóli

Ágrip af sögu Holtaskóla Skólinn tók til starfa 1952 og hét þá Gagnfræðaskólinn í Keflavík. Fyrstu árin var kennt í Barnaskólanum við Skólaveg og í Sjálfstæðishúsinu sem stóð á horni Hafnargötu og Skólavegar. Árið 1962 var lokið við byggingu nýs skólahúss við Sunnubraut 32 og það tekið í notkun 13. okt 1962. Skólahúsnæðið hefur verið stækkað í þrem áföngum. Norðurálma var byggð árið 1970 og miðálma var byggð 1972. Nýjasta álma skólans var tekin í notkun 1977 og þar hafði Fjölbrautaskóli Suðurnesja aðsetur til ársins 1979 en þá flutti sá skóli í núverandi húsnæði. Árið 1982 var skipt um nafn á Gagnfræðaskólanum í Keflavík í kjölfar nýrra grunnskólalaga. Fékk skólinn nafnið Holtaskóli. Fyrsti skólastjóri Gagnfræðaskólans var Rögnvaldur J. Sæmundsson. Var hann skólastjóri frá árinu 1952 allt til ársins 1976. Þá tók við skólastjórn Sigurður E. Þorkelsson og gegndi hann starfinu til vorsins 2003. Þegar Sigurður lét af störfum var Jónína Guðmundsdóttir ráðinn skólastjóri. Haustið 2007 var núverandi skólastjóri, Jóhann Geirdal ráðinn skólastjóri.. Holtaskóli er einsetinn, hverfaskiptur grunnskóli og tekur við nemendum í 1. - 10. bekk. Nemendur eru nú 424 talsins í 19 bekkjum. Kennarar eru 43 og annað starfsfólk 33. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu alla skóladaga og kemur sá matur frá Skólamat.

Oversigt over Reykjanesbær

Klik på "alle" eller en gruppe for flere detaljer
Information ALLE
Udråbstegn Kørestolsbrugere
Udråbstegn Gang-, arm- og håndhandicappede
Udråbstegn Synshandicappede
Flueben Hørehandicappede
Flueben Personer med astma og allergi
Udråbstegn Udviklingshandicappede
Flueben Personer med læsevanskeligheder
Kontaktinformationer
AdresseSunnubraut 32, 230 Reykjanesbæ

Telefon4203500

Emailholtaskoli@holtaskoli.is

Hjemmesidewww.holtaskoli.is

Ulla Kramer

Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.

info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96