Reykjanesbær - Leikskólinn Tjarnarsel
Leikskólinn Tjarnarsel hefur verið starfandi í rúma fjóra áratugi en starfsemin hefur þróast og breyst í gegnum tíðina. Hann er staðsettur í hjarta bæjarins. Leikskólinn tók til starfa 18. ágúst 1967 og er elsti leikskólinn í Keflavík í Reykjanesbæ. Árið 1954 réðust kvenfélagskonur í Keflavík í að byggja dagheimili og félagsheimili sem þær nefndu Tjarnarlund. Var þetta fyrsta dagheimilið í Keflavík. Árið 1967 afhentu kvenfélagskonur Keflavíkurbæ lóð til eignar undir annan leikskóla sem nefndur var Tjarnarsel og hófst starfsemin þar 1967. Bærinn keypti síðan Tjarnarlund af kvenfélaginu árið 1983 undir rekstur leikskóla. Fram til ársins 2000 fór starfsemin fram í tveimur húsum. Árið 1999 var ráðist í að byggja tengibyggingu á milli húsanna og í dag fer öll starfsemi fram undir sama þaki. Það dvelja 80 börn, samtímis, í leikskólanum á aldrinum 2-6 ára. Dvalartími barna getur verið fjórar til átta klukkustundir á dag eftir óskum og aðstöðu foreldra. Tjarnarsel er fjögurra deilda leikskóli. Deildirnar eru aldursskiptar í 2ja, 3ja, 4ra og 5 ára. Þær heita Mánavellir (2ja ára), Sólvellir (3ja ára), Ljósvellir (4ra ára), og Sunnuvellir (5 ára). Miðað er við að um sumarfrí ár hvert færist öll börn ásamt kennurum yfir á næstu aldursdeild.
ALLE
Kørestolsbrugere
Gang-, arm- og håndhandicappede
Synshandicappede
Hørehandicappede
Personer med astma og allergi
Udviklingshandicappede
Personer med læsevanskeligheder
Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96


