Godadgang Logo

Reykjanesbær - Njarðvíkurskóli

Reykjanesbær - Njarðvíkurskóli
Reykjanesbær - Njarðvíkurskóli

Njarðvíkurskóli er í Ytri Njarðvík í Reykjanesbæ. Skólinn er heildstæður grunnskóli með 352 nemendur í 1. - 10. bekk og 72 starfsmönnum. Sérstaða skólans: Umhverfisvænn grunnskóli sem leggur áherslu á lestrarnám upp allan grunnskólann. Skólinn hefur undir sinni stjórn tvær sérdeildir sem þjóna öllum Suðurnesjum nema Grindavík. Önnur deildin, Ösp, er ætluð þroskaskertum og fötluðum nemendum og starfa þar þroskaþjálfi og kennarar ásamt stuðningsfulltrúum. Hin deildin, Björk, er ætluð nemendum með hegðunarerfiðleika sem yfirleitt eru tímabundið í deildinni. Í Björkinni starfa 3 kennarar. Deildirnar eru í tveimur húsum á lóð skólans. Tónlistarskóli bæjarins hefur aðstöðu til kennslu í skólanum og frístundaskóli, fyrir nemendur 1.-4. bekkjar, er rekinn í skólahúsnæðinu að loknum hefðbundnum skóladegi. Íþróttamiðstöð er í næsta húsi þar sem öll íþróttakennsla fer fram. Skólinn var stofnaður 1942 og var skólahúsið tekið í notkun í febrúar 1943. Þá hefur oft verið byggt við húsið síðan eða fimm sinnum. Sumarið 1999 var húsið allt endurbætt að innan og er aðstaðan til fyrirmyndar. Skólinn á fjölbreytt úrval kennslugagna. Skólinn þjónar þremur hverfum: Höfnum, Grænási og Ytri Njarðvík. Allir þessir staðir tilheyra Reykjanesbæ sem varð til við sameiningu þessara byggðarlaga ásamt Keflavík árið 1994. Í bænum eru um 15.000 íbúar en í skólahverfi Njarðvíkurskóla búa u.þ.b. 3300 íbúar. (upplýsingar eru af vefsíðu skólans http://www.njardvikurskoli.is)

Oversigt over Reykjanesbær

Klik på "alle" eller en gruppe for flere detaljer
Information ALLE
Udråbstegn Kørestolsbrugere
Udråbstegn Gang-, arm- og håndhandicappede
Flueben Synshandicappede
Flueben Hørehandicappede
Flueben Personer med astma og allergi
Flueben Udviklingshandicappede
Flueben Personer med læsevanskeligheder
Kontaktinformationer
AdresseBrekkustíg 2, 260 Reykjanesbæ

Telefon420 3000

Emailnjardvikurskoli@njardvikurskoli.is

Hjemmesidehttp://www.njardvikurskoli.is

Ulla Kramer

Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.

info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96