Reykjavíkurborg - Ásmundarsafn
Ásmundarsafn er helgað verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara (1893-1982) og var opnað formlega 1983. Það er til húsa í einstæðri byggingu sem listamaðurinn hannaði að mestu sjálfur og byggði á árunum 1942-59. Formhugmyndir hússins eru sóttar til Miðjarðarhafsins, í kúluhús araba og píramída Egyptalands. Í byggingunni voru heimili og vinnustofa listamannsins. Ásmundur byggði síðar bogalaga byggingu aftan við húsið, sem bæði var hugsuð sem vinnustofa og sýningarsalur. Síðar hannaði arkitektinn Mannfreð Vilhjálmsson viðbyggingu sem tengdi aðalhúsið og bogabygginguna saman. Umhverfis safnið er höggmyndagarður og prýða hann nær þrjátíu höggmyndir listamannsins. Ásmundur Sveinsson var einn af frumkvöðlum höggmyndalistar á Íslandi og sótti innblástur í íslenska náttúru og bókmenntir sem og til þjóðarinnar sjálfrar. Verslun Í Ásmundarsafni er safnverslun þar sem boðið er upp á úrval innlendra og erlendra listaverkabóka og sýningarskráa sem safnið hefur gefið út í gegnum árin, einnig eru afsteypur af verkum Ásmundar Sveinssonar til sölu í versluninni. Verslunin er opin á opnunartíma safnsins. Leiðsögn Í Ásmundarsafni er tekið á móti nemendum og öðrum hópum, sem óska eftir leiðsögn um sýningarnar. Nánari upplýsingar í síma 590 1200 eða á netfangið: fraedsludeild@reykjavik.is









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96