Godadgang Logo

Skjaldarvík - Snyrting og bað #2

Skjaldarvík - Snyrting og bað #2

Skjaldarvík býður upp á gistingu í 19 fallega búnum herbergjum með sameiginlegri bað- og snyrtiaðstöðu. Herbergin eru eins til fjögurra manna og hægt að koma fyrir aukarúmum í mörgum tilvikum. Góð rúm eru í öllum herbergjum, þægilegir svefnsófar í þriggja til fjögurra manna herbergjum, aukarúm eru vönduð og þægileg. Herbergin er útfærð á ólíkan hátt, hvert og eitt með sín sérkenni en gæði gistingar í öllum herbergjum þau sömu. Verðlista er að finna í valmyndinni hér til hliðar. Morgunmatur er innifalinn í verði gistingar en greiða þarf fyrir hann sérstakalega þegar fleiri en þrír eru í herbergi, sjá nánar í verðlista. Í austurálmu er notaleg setustofa og bar með sjónvarpi, bókasafni og spilum. Í bakgarði eru svo heitu pottarnir en hvergi er betra að láta líða úr sér eftir góðan dag, frítt er í pottana fyrir gesti gistiheimilisins. Á lóðinni er notalegur trjálundur þar sem gestir og gangandi geta tyllt sér niður með kaffibolla, morgunverðinn eða bara lagst í hengirúmið og látið sig dreyma. Í Skjaldarvík er starfrækt hestaleiga í fallegu umhverfi þar sem færi gefst á að kynnast íslenska hestinum undir faglegri leiðsögn. Eftir reiðtúrinn býðst fólki að stinga sér í heitapottinn og láta líða úr sér. Við sækjum og skuttlum að sjálfsögðu í bæinn (Upplýsingamiðstöðina í Hofi) sé þess óskað. Hestaleigan er opin frá 15. maí - 15. sept.

Oversigt over Skjaldarvík

Klik på "alle" eller en gruppe for flere detaljer
Information ALLE
Udråbstegn Kørestolsbrugere
Udråbstegn Gang-, arm- og håndhandicappede
Flueben Synshandicappede
Flueben Hørehandicappede
Flueben Personer med astma og allergi
Udråbstegn Udviklingshandicappede
Flueben Personer med læsevanskeligheder
Kontaktinformationer
AdresseSkjaldarvík 1, 601 Akureyri

Ulla Kramer

Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.

info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96