Sólheimar - Vigdísarhús
Vigdísarhús er fyrsta húsið sem komið er að þegar beygt er inn á aðalafleggjara við á Sólheima í Grímsnesi. Húsið er nýlegt og er aðgengi fólks með fötlun að efri hæð þess ágætt. Á efri hæð hússins eru skrifstofur, matsalur og fundaherbergi. Bílastæðin eru ómerkt á yfirborði og því erfitt að áætla það svæði sem notandi bifreiðar hefur til umráða. Engin stæði eru sérmerkt fyrir hreyfihamlað fólk. Halli stéttar við inngang er þónokkur og enginn láréttur flötur við hurðina. Hurðin opnast aftur á móti með hreyfiskynjara og því þarf ekki að stoppa í hallanum til að opna hurðina. Ein snyrting sem ætluð er fyrir fólk með fötlun er á hæðinni sem og rúmgott fatahengi. Matsalurinn er rúmur og vel aðgengilegur og þar er starfsfólk við afgreiðslu í matar og kaffitímum. Skrifstofur eru einnig vel aðgengilegar. Snyrtingar eru í almenningsrými á milli skrifstofuálmunnar og matsalarins. Stigi er niður á neðri hæð hússins en engin lyfta er til staðar. Á neðri hæð byggingarinnar er bakarí Sólheima og skrifstofa tengd því. Hæðarmunur er við innganginn og engin afmörkuð bílastæði. Snyrting í sameign er rúmgóð en það vantar armstoðir við salernið.

Hørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
Kørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede, Synshandicappede

Synshandicappede, Hørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
Kørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede

Synshandicappede, Hørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
Kørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede

Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96