Sólheimar - Græna kannan kaffihús
Græna Kannan er kaffi- og samveruhús íbúa Sólheima og gesta. Græna Kannan hefur aðeins á boðstólnum drykki og meðlæti úr lífrænt vottuðu hráefni, þar á meðal góðgæti úr bakaríi Sólheima. Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði kaffihússins ásamt því að úrval matar og drykkjar er aukið verulega, aðstaða fyrir lestur bóka og tímarit hefur verið bætt auk þess sem frí aðgangur er að interneti. Yfir sumarmánuðina er Græna Kannan opin alla daga vikunnar, að vetri er opnunartíminn takmarkaður, þó ávallt sé kirkjukaffi að lokinni guðþjónustu! Sjá opnunartíma á forsíðu heimasíðunnar. Oft eru uppákomur á kaffihúsinu og má sjá yfirlit yfir komandi atburði í dálknum “ á döfinni“ á forsíðu heimasíðunnar. Vertu velkomin(n) í kaffi á Grænu Könnuna.









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96