Godadgang Logo

Sveitahótelið Smyrlabjörg

Sveitahótelið Smyrlabjörg

Beint frá býli Cat I - Herbergi eru án baðs og handlaugar Cat IV - Herbergi eru með baði og eingöngu á sveitahótelum. Þá er gerðar meiri kröfur varðandi aðbúnað í herbergjum auk hærra þjónustustigs Handverk sýnt á bænum Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard) Reykingar bannaðar Þráðlaust netsamband Hefðbundinn búskapur Snjósleðaferðir Máltíðir og/ eða léttar veitingar Vínveitingar Velbúið sveitahótel við rætur Vatnajökuls, þar sem lögð er áhersla á að matvæli komi úr heimabyggð. Á sumrin er boðið upp á kvöldverðarhlaðborð með fjölda rétta úr ríki Vatnajökuls. Góð ráðstefnu- og fundaraðstaða, einnig veislusalur sem tekur um 100 manns í sæti sem er tilvalin fyrir árshátíðir, afmæli og aðra viðburði. Gönguleiðir eru í nágrenninu sem henta til skoðunar á fuglum, gróðri og fjölbreyttri náttúru. Allir velkomnir að kíkja við í kaffi, mat eða gistingu. Smyrlabjörg standa við veg 1. Búskapur/gæludýr: Kindur, hestar, nautgripir, hænur, endur og hundar. Næsta þéttbýli/verslun/sundlaug/golfvöllur: Höfn 45 km. Gestgjafar Laufey Helgadóttir, Sigurbjörn Karlsson Heimild: www.sveit.is - Sveitahótelið Smyrlabjörg Frá AccessIceland: Úttekt er gerð 18. maí 2012 og eru framkvæmdir enn við nýbyggingu og frágangur á aðkomu og bílastæðum á næsta leyti. Þeir sem þjást af ofnæmi og eða astma geta beðið um sérstakar sængur og kodda. ATH. beiðni um slíkt þarf að berast við bókun gistingar. Herbergin eru alment rúmgóð. Sturtur eru í öllum baðherbergjum og engin hæðarmunur er inn í sturtusvæðið sem gerir umgengni um þær góðar. Engar armstoðir eru við salernin á baðherbergjunum fyrir utan herbergi 111. Hurðir opnast inn á baðherbergin sem minkar umgengnismöguleikana talsvert. Gangur með herbergjum nr. 101-110, Á ganginum eru 5 herbergi með rými til hægri við salerni og 5 herbergi með rými til vinstri við salerni. Öll án armstoða. Herbergi nr. 111 er með armstoðum beggja vegna við salerni. Gangur með herbergjum nr. 121-132, Á ganginum eru 6 herbergi með rými til hægri við salerni og 6 herbergi með rými til vinstri við salerni. Öll án armstoða.

Mærkede steder
Sveitahótelið Smyrlabjörg - almenn snyrting í herbergjaálmu
almenn snyrting í herbergjaálmu

FluebenSynshandicappede, Hørehandicappede, Personer med astma og allergi, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede, Udviklingshandicappede



Sveitahótelið Smyrlabjörg - Herb. 131, frítt svæði til hægri
Herb. 131, frítt svæði til hægri

FluebenHørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede, Synshandicappede



Sveitahótelið Smyrlabjörg - herb. 132, frítt svæði til vinstri
herb. 132, frítt svæði til vinstri

FluebenHørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede, Synshandicappede



Sveitahótelið Smyrlabjörg - Herbergi 111, aðgengi frá vinstri
Herbergi 111, aðgengi frá vinstri

FluebenHørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede, Synshandicappede



Sveitahótelið Smyrlabjörg - Móttaka
Móttaka

FluebenHørehandicappede, Personer med astma og allergi, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede, Synshandicappede, Udviklingshandicappede


Kontaktinformationer
AdresseSmyrlabjörgum, 781 Höfn í Hornafirði

Telefon478 1074

Emailsmyrlabjorg@smyrlabjorg.is

Hjemmesidewww.smyrlabjorg.is

Ulla Kramer

Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.

info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96