Godadgang Logo

Vogar - Leikskólinn Suðurvellir

Vogar - Leikskólinn Suðurvellir

Leikskólinn Suðurvellir tók til starfa 9. október 1991. Frá stofnun hans og fram til ársins 2001 var hann ein deild en þá um haustið opnuðu tvær deildir til viðbótar og miðrými. Í ágúst 2008 var tekin í notkun laus kennslustofa sem hýsir eina deild, en henni er ætlað að standa tímabundið. Leikskólinn er nú fjögurra deilda og allur aðbúnaður og aðstaða er góð. Börnin eru á aldrinum eins árs til sex ára og vistunartími þeirra er frá fjórum klst. upp í níu og hálfa klst. á dag. Leikskólinn er opinn alla virka daga frá kl. 7:30 - 17:00. Deildirnar eru aldursskiptar, þær heita Lágibjalli, Lyngbjalli, Háibjalli og Staðarborg. Í sameiginlegu rými skólans er matsalur, íþróttasalur, listaskáli og starfsmannaaðstaða. Umhverfi leikskólans hefur upp á margt að bjóða, stutt er í svæði þar sem unnt er að njóta útivistar og vettvangsferða, s.s. fjaran sem er í göngufæri við leikskólann, stutt er í móann, Aragerði og önnur opin svæði. Tekin var upp Heilsustefna í leikskólanum 2004 og Suðurvellir fékk formlega viðurkenningu sem Heilsuleikskóli þann 20. október 2005. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi. Einkunnarorð leikskólans er „Heilbrigð sál í hraustum líkama". Rekstraraðili leikskólans er Sveitarfélagið Vogar.

Mærkede steder
Vogar - Leikskólinn Suðurvellir
Leikskólinn Suðurvellir

FluebenSynshandicappede, Hørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede



Vogar - Leikskólinn Suðurvellir_færanleg kennslustofa
Leikskólinn Suðurvellir_færanleg kennslustofa

FluebenSynshandicappede, Hørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede


Kontaktinformationer
AdresseSuðurgata 1-3, 190 Vogar

Telefon440 6240

Emailleikskoli@vogar.is

Hjemmesidewww.leikskolinn.is/sudurvellir

Ulla Kramer

Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.

info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96