Godadgang Logo

Haukadalsskógur

Haukadalsskógur

Skemmtilegur og skjólsæll útivistarskógur með merktum gönguleiðum og sérhönnuðum stíg fyrir hjólastóla. Almennt um skóginn Haukadalsskógur er einn stærst þjóðskógur Suðurlands og sá skógur sem mest hefur verið gróðursett í af þjóðskógum Íslands. Fjölmargar skógræktartilraunir fara fram á svæðinu, sem og skógvistarrannsóknir. Aðstaða til útivistar er góð, m.a. er sérhannaður stígur fyrir hjólastóla í skóginum sem unninn hefur verið í góðri samvinnu við Sjálfsbjörgu á Suðurlandi. Staðsetning og aðgengi Ekið er upp Biskupstungnabraut að Geysi, framhjá hótelinu og beygt til vinstri upp með hverasvæðinu að austanverðu. Norður af bílaplani sem þar er liggur malarvegur að Haukadalsskógi og er leiðin inn að kirkju rúmur kílómetri. Hægt er að keyra um hluta þessa ræktaðra skógar sem teygir sig langleiðina upp á Haukadalsheiði, eitthvert víðáttumesta landgræðslusvæði landsins. Frá Haukadal liggur sæmilegur vegur upp á Haukadalsheiði á Hlöðufellsveg F338 (fjallvegur). Þaðan skiptast leiðir, á hægri hönd á Kjalveg en til vinstri á Kaldadalsveg. Aðstaða og afþreying Góð aðstaða er til útiveru í fögru og skjólsælu umhverfi. Í Haukadal hafa verið lagðir merktir göngustígar fyrir þá sem hafa áhuga á að kynnast skógi og skógarumhverfi. Við stígana eru fræðsluskilti með upplýsingum um skóga og náttúru í Haukadal. Í skóginum er m.a. sérhannaður stígur fyrir hjólastóla. Auk merktra göngustíga eru fjöldi stíga og brauta sem fólki er heimilt að ganga um. Brautirnar eru aðeins ætlaðar dráttarvélum og ekki færar fólksbílum, því er fólk beðið um að reyna ekki að aka þær. Aðstaða er til að grilla í stóru grillhúsi, Kristian Kirk húsinu, í jaðri skógarins. Kristian Kirk húsið var byggt af Einari Óskarssyni að frumkvæmi Morten T. Leth og er eingöngu byggt úr viði úr sunnlenskum skógum (sjá myndir af húsinu í myndaalbúmi hér að ofan). Salernisaðstaða er fyrirhugið við Kristian Kirk húsið en nú er salernishús við stíginn sem liggur upp að Svartagili í skóginum (sjá kort hér að neðan). Saga jarðarinnar Höfuðbólið Haukadalur er í eigu Skógræktar ríkisins. Danskur maður, Kristian Kirk, gaf stofnuninni jörðina árið 1940, en hann keypti hana tveimur árum fyrr og hófst handa við að stöðva uppblástur og girða af. Jörðin er 1600 ha að stærð og með henni fylgdu hlutar eyðibýlanna Bryggju og Tortu. Á hólnum austan við kirkjuna stóð gamli Haukadalsbærinn. Hann er ekki lengur sjáanlegur en í dag stendur flaggstöng á gamla bæjarstæðinu. Kirkja hefur staðið í Haukadal frá alda öðli. Hún stendur enn á upphaflegum grunni á vesturbakka Beinár. Elstu heimildir um kirkju eru frá árinu 1121. Kirkjan var bændakirkja til 1290 en líklegt er að þá hafi staðurinn verið lagður undir Skálholtsstól og hélst sú skipan þar til í lok 18. aldar að stólsjarðirnar voru seldar. Haukadalur var seldur á uppboði að Vatnsleysu 1. október 1794. Kirkjan hélst síðan í bændaeign þar til 1940, að Skógrækt ríkisins eignaðist hana ásamt jörðinni. Kirkjan var síðast endurbyggð af Kristian Kirk, eiganda jarðarinnar árið 1938, en að stofni og útliti er hún frá 1842 og því með elstu timburkirkjum á landinu. Haukadalur er sögufrægur staður. Þar námu land Þorbrandur Þorbjarnarson og Ásbrandur, sonur hans. Hallur þórarinnson hinn mildi reisti bú í Haukadal árið 1025. Hjá honum ólst upp Ari fróði Þorgilsson og einnig ættfaðir Haukadalsættar, Teitur Ísleifsson. Skóli var í Haukadal á dögum Teits Ísleifssonar, fyrsti prestaskóli á Íslandi. Hallur Teitsson varð prestur í Haukadal árið 1110 og tók við búi föður síns. Sonur Halls var Gizur lögsögumaður í Skálholti. Ættin sat Haukadal í 6 ættliði eða 174 ár, síðastur var Ormur Klængsson d.1284. Trjárækt í skóginum Í Haukadal hafa verið prófaðar margar trjátegundir og enn fleiri kvæmi (staðbrigði) ýmissa trjátegunda, s.s.sitkagreni, stafafuru og ösp frá Alaska, lerki frá Rússlandi. rauðgreni frá Noregi og blágreni úr háfjöllum Bandaríkjanna. Mest hefur verið plantað af þessum tegundum en einnig er í minna mæli notast við fjallaþin frá Bresku Colombiu í Kanada, þöll frá Alaska, lindifuru frá Rússlandi, mýralerki frá Alaska, auk fleiri tegunda. Í skóginum er afar áhugavert trjásafn sem stofnað var til í minningu Gunnars Freysteinssonar skógfræðings sem lést í bílslysi 1998. Þar voru gróðursettar trjátegundir frá nokkrum heimsálfum og er svæðinu skipt upp samkvæmt því. Í Haukadal er sitkagreni sú trjátegund sem sýnt hefur einna bestan vöxt, eða rúma fimm rúmmetra á hektara á ári að meðaltali. Ljóst er að rakur og frjósamur jarðvegur Haukadals er kjörlendi fyrir sitkagreni. Skógurinn er grisjaður og nytjaður í kurl, spæni og til smíða. Gildasti viðurinn sem fellur til við grisjun skóga hefur verið flettur og notaður til að smíða bekki og borð, og í klæðningar. Ýmsar skógræktartilraunir hafa verið gerðar í Haukadal, svo sem samanburðartilraunir með kvæmi, samanburðartilraunir og ræktun Fjallaþins í jólatrjáaframleiðslu, frostlyftingartilraunir nýgróðursettra plantna, prófanir á grisjunarþéttleika skóga, könnun á nagi ranabjalla á rótum plantna, áburðartilraunir á nýgróðursettar plöntur o.fl. Annað áhugavert í skóginum Sumarið 2002 hófst gerð skógarstíga fyrir hreyfihamlaða í Haukadalsskógi. Verkefnið er samvinnuverkefni Sjálfsbjargar á Suðurlandi og Skógræktar ríkisins. Aðalstyrktaraðili verkefnisins er Pokasjóður verslunarinnar, en auk þess hafa Ferðamálaráð Íslands, Sjálfsbjörg á Suðurlandi, Landgræðslusjóður, Svæðisvinnumiðlun Suðurlands, Bændasamtök Íslands og sumarvinna Landsvirkjunar. Þá unnu jafnframt nemendur Menntaskólans að Laugarvatni og Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi við stíginn í sjálfboðavinnu.

Mærkede steder
Haukadalsskógur -  frá brúnni að Svartagili
frá brúnni að Svartagili

FluebenHørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede, Synshandicappede



Haukadalsskógur - bálaðstaða við starfsmannahús
bálaðstaða við starfsmannahús

FluebenKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede, Hørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnSynshandicappede



Haukadalsskógur - Grillaðstaða
Grillaðstaða

FluebenGang-, arm- og håndhandicappede, Hørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Synshandicappede



Haukadalsskógur - skógarstígur
skógarstígur

FluebenHørehandicappede, Personer med astma og allergi, Udviklingshandicappede, Personer med læsevanskeligheder
UdraabstegnKørestolsbrugere, Gang-, arm- og håndhandicappede, Synshandicappede


Kontaktinformationer
AdresseHaukadal, 801 Selfoss

Telefon470 2000

Emailskogur@skogur.is

Hjemmesidewww.skogur.is

Ulla Kramer

Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.

info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96