Haukadalsskógur - bálaðstaða við starfsmannahús
Skógarstígurinn í Haukadalsskógi er einstaklega þægilegur yfirferðar fyrir hjólastólanotendur, barnavagna og reiðhjól enda hannaður með þarfir hjólastólanotenda í huga. Sjálfur skógarstígurinn er elstur og auðveldastur yfirferðar en einnig eru stígar niður að nærliggjandi læk og upp í fjallshlíðina fyrir ofan. "Lækjarstígurinn" og "fjallastígurinn" eru aðeins mýkri á yfirborðinu og töluvert erfiðari yfirferðar sökum halla í landslagi en með góðri aðstoð ætti að vera auðvelt að fara um svæðið. Einnig má benda á að hægt er að keyra að efri hluta "hjólastólastígsins" og fara niður að grillskýlinu og bálhúsinu, þá er nær einungis farið niður í móti alla leið. Einnig eru bílastæði við grillskýlið og bálhúsið. Hægt er að skoða kort af svæðinu þar sem stígarnir eru sýndir inn á vef Skógræktar ríkisns www.skogur.is









Ring eller skriv til os, hvis du har en virksomhed eller en bygning, som skal God Adgang mærkes.
info@godadgang.dk - tel. 51 34 35 96